Tveggja tíma hjálp
Þú átt inni 120 mínútur af hjálp frá mér! Vantar þig aðstoð við tiltekt, að sækja eitthvað, skutl eða eitthvað sem hefur setið á hakanum? Þú segir mér hvað ég get gert og ég mæti til leiks!
Samvera, upplifun, hjálp eða eitthvað sem þú býrð til. Veldu gjöf, settu hana í körfuna og búðu til gjafakort.
Þú átt inni 120 mínútur af hjálp frá mér! Vantar þig aðstoð við tiltekt, að sækja eitthvað, skutl eða eitthvað sem hefur setið á hakanum? Þú segir mér hvað ég get gert og ég mæti til leiks!
Þér er hér með boðið í mat og drykk heima hjá mér! Ég sé um matseðilinn, eldamennskuna og uppvaskið. Þú mætir bara!
Þú átt inni sundferð og ís á eftir! Fullkomin samvera í besta félagsskapnum.
Þú átt inni fjallgöngu í góðum félagsskap og ég sé um nesti!
Þú átt inni notalegt kósíkvöld með góðri bíómynd, alls konar gómsætu nasli og frábærum félagsskap.
Þessa bók las ég og mæli með! Bókinni fylgir gott bókaspjall yfir kaffibolla við fyrsta tækifæri.
Samveru, upplifun eða hjálp. Settu hana í körfuna eins og í hverri annarri vefverslun.
Skrifaðu nafn þess sem fær gjöfina, þitt nafn og nokkur orð frá hjartanu.
Gjafakortið kostar ekkert. Þú sérð svo um að standa við loforðið.
Kíktu í skartgripaskrínið, geymsluna eða bollaskápinn. Áttu eitthvað sem á sér sögu en gæti glatt einhvern annan meira? Gefðu hlutnum nýtt líf og láttu sögu hlutarins fylgja með.
Skemmtilegar vísur geta fylgt fólki alla ævi. Semdu persónulega vísu fyrir einhvern sem þér þykir vænt um. Rímorðabókin er frábært hjálpartæki!
Taktu fram penslana og málaðu mynd sérstaklega fyrir viðtakandann. Hún þarf ekki að vera fullkomin, það er hugsunin og sköpunargleðin sem skiptir máli.