Tveggja tíma hjálp
Þú átt inni 120 mínútur af hjálp frá mér! Vantar þig aðstoð við tiltekt, að sækja eitthvað, skutl eða eitthvað sem hefur setið á hakanum? Þú segir mér hvað ég get gert og ég mæti til leiks!
Allt sem hér fæst kostar 0 kr. Það sem gerir gjöfina dýrmæta er að hún er valin með einhvern ákveðinn í huga.
Þú átt inni 120 mínútur af hjálp frá mér! Vantar þig aðstoð við tiltekt, að sækja eitthvað, skutl eða eitthvað sem hefur setið á hakanum? Þú segir mér hvað ég get gert og ég mæti til leiks!
Þú átt inni fimm skipti af pössun hjá mér! Þú velur hvenær þú vilt nýta þau og ég mæti til leiks.
Þú átt inni eina útilegu í góðum félagsskap! Við pökkum tjaldinu, finnum fallegan stað og njótum þess að vera úti í náttúrunni.
Þú átt inni axla- og fótanudd þar sem eina verkefnið þitt er að slaka á og njóta.
Þér er hér með boðið í mat og drykk heima hjá mér! Ég sé um matseðilinn, eldamennskuna og uppvaskið. Þú mætir bara!
Þú átt inni sundferð og ís á eftir! Fullkomin samvera í besta félagsskapnum.
Þú átt inni notalega bústaðaferð með góðum mat, afslöppun og nægum tíma til að njóta samverunnar.
Þér er boðið í kvöld fullt af leyndarmálum, vísbendingum og grunsamlegum persónum. Getur þú leyst ráðgátuna?
Þú átt inni kvöld þar sem við spilum eitthvað skemmtilegt saman.
Þú átt inni hressandi sjósundsferð í góðum félagsskap.
Þú átt inni fjallgöngu í góðum félagsskap og ég sé um nesti!
Þú átt inni leikhúsferð með mér! Þú velur sýninguna, ég sé um miðana og við njótum kvöldsins saman.
Þú átt inni eitt kvöld af hlátri! Þú velur uppistandið, ég sé um miðana og svo hlæjum við saman.
Þú átt inni notalegt kósíkvöld með góðri bíómynd, alls konar gómsætu nasli og frábærum félagsskap.
Þú átt inni eitthvað hlýtt og mjúkt, handprjónað sérstaklega fyrir þig. Þú segir mér hvað þig langar í og ég tek upp prjónana!
Þessa bók las ég og mæli með! Bókinni fylgir gott bókaspjall yfir kaffibolla við fyrsta tækifæri.
Þér er boðið á skapandi stefnumót! Við skoðum list, sækjum okkur innblástur og sköpum eitthvað saman.